Drauga jarðarber

Linda Ben X Noi Sirius Oktober 2026 1 2 1200X715

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
  1. Þvoið jarðarberin og þerrið þau mjög vel. Mikilvægt er að þau séu alveg þurr áður en þeim er dýft í súkkulaðið.
  2. Bræðið hvítu súkkulaðidropana í skál yfir vatnsbaði.
  3. Leggið bökunarpappír á bakka. Setjið svolítið af bræddu hvítu súkkulaði á pappírinn og dragið það út með bakhliðinni á matskeið þannig að það myndi langan, mjókkandi draugahala. Endurtakið fyrir öll jarðarberin.
  4. Dýfið jarðarberjunum í hvíta súkkulaðið þannig að þau hjúpist vel. Leggið þau síðan ofan á breiðari enda súkkulaðihalanna og látið súkkulaðið harðna.
  5. Bræðið rjómasúkkulaðidropana yfir vatnsbaði.
  6. Dýfið endanum á grillpinna eða öðrum mjóum pinna í brædda rjómasúkkulaðið og teiknið tvö augu og opinn draugamunn á hvert jarðarber. Látið súkkulaðið storkna alveg áður en draugarnir eru bornir fram.

 

Uppskrift frá Lindu Ben.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
  • 400 g jarðarber
  • 300 g Síríus hvítir súkkulaðidropar
  • 50 g Síríus rjómasúkkulaðidropar