Grillað Pringles Nachos

Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
Hitið og þrífið grillið.
Blandið saman í skál cumin, hvítlauksdufti, reyktri papriku, oreganó og salti.
Kryddið hamborgarana með kryddblöndunni og grillið.
Saxið eða rífið hamborgarana.
Takið til steypujárns pönnu eða grillbakka.
Setjið grunnlag af Pringles, toppið svo með osti og hamborgara.
Endurtakið í nokkrum lögum þar til hráefnið klárast eða mótið fyllist.
Grillið í óbeinum hita með lokið á, í ca. 10-20 mínútur.
Takið af grillinu, toppið með salsa, sýrðum rjóma og söxuðum kóríander.
Berið fram og njótið.
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
1 stk Pringles Orginal eða þitt uppáhalds
200g cheddar ostur, rifinn
2x 130g hamborgarar
1 tsk cumin
1 tsk hvítlauksduft
½ tsk reykt paprika
1 tsk oreganó
Salt, eftir smekk
1 dolla sýrður rjómi
1 krukka salsa sósa
½ dl Kóríander, saxaður