Grillaður Maís með Pringles

Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
Hitið og þrífið grillið.
Setjið Pringles í skál og myljið í litlar flögur.
Í skál blandið saman sýrðum rjóma og hot sauce.
Snyrtið maís stönglana og skellið á grillið.
Grillið maísinn þar til hann er brúnaður.
Takið maísinn af grillinu, setjið í fat með smjöri.
Veltið maísnum upp úr smjörinu og leyfið því að bráðna yfir hann.
Næst takið maísinn og stráið yfir og veltið upp úr Pringles.
Toppið með sósunni og söxuðum kóríander.
Berið fram og njótið.
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
4 stk ferskir maís stönglar
2 msk smjör
1 dl sýrður rjómi
2-4 tsk hot sauce af eigin vali
Pringles Paprika eða þitt uppáhaldsbragð
Ferskur kóríander, saxaður