Saltkaramellu kringlubitar

Linda Ben X Nói Síríus September 2026. 1 12

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
  1. Bræðið Töggurnar og rjómann varlega saman í potti. Hrærið þar til silkimjúk karamella hefur myndast og leyfið henni að kólna örlítið og þykkna.
  2. Raðið helmingnum af súkkulaðikringlunum á smjörpappír. Setjið u.þ.b. 1 tsk af karamellu á hverja kringlu og leggið aðra súkkulaðikringlu ofan á. Þrýstið örlítið saman.
  3. Dreifið örlitlu flögusalti yfir og leyfið karamellunni að taka sig áður en bitarnir eru bornir fram.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
  • 160 g Nóa súkkulaðikringlur
  • 150 g Töggur rjómakaramellur frá Nóa Síríus
  • 2½ msk rjómi
  • Flögusalt