Súkkulaði snúðar

Uppskrift
Leiðbeiningar
Snúða deig
Í stórri skál blandið saman hveiti, sykur og þurrger með písk. Setjið svo smjör og mjólk í sömu skál og hnoðið í hrærivél í míntútu.
Blandið síðan saman við eggi og salti á meðan hrærivélinni gengur og hnoðið í u.þ.b 10 mín.
Leggið síðan yfir viskastykki eða plastfilmu og látið hefast í 30-60 mín við stofuhita eða þar til deigið hefur tvöfaldast í stærð.
Á meðan deigið er í hefun er sniðugt að gera súkkulaði fyllinguna.
Súkkulaði fylling
Bræðið allt saman í potti og gætið þess að ekkert brenni í botninum með því að hræra stöðugt, leyfið síðan fyllingunni að kólna í smá stund.
Samsetning
Stráið hveiti á vinnu borðið og fletjið út deigið í stóran ferhyrning með kökukefli.
Smyrjið síðan súkkulaði blöndunni yfir allt deigið.
Brjótið síðan upp hliðarnar eina í einu af deiginu þannig að þrjú lög af deigi er staflað ofan á hvort annað.
Fletjið deigið aðeins út til að jafna allt.
Notið síðan pizza skera til að skera nokkrar lengjur úr deiginu og rúllið þeim upp eins og í snúðaform.
Leggið snúðana á bökunarplötu með bökunar pappír of hefið við stofuhita með plastfilmu ofan á í 30-50 mín eða þar til að þeir hafa púffast töluvert upp.
Bakið síðan á 190°c í 12-16 mínútur.
Leyfið rétt svo að kólna og stráið smá flórsykri ofan á og njótið!
Innihaldsefni
Snúða deig
450 g. Hveiti
1 pakki þurrger (1 ½ tsk)
80 g smjör
½ tsk salt
100 g smjör
220 g mjólk við stofuhita
1 egg
Súkkulaði fylling
1 plata Síríus Barón súkkulaði 56% (150 g)
120g smjör
105g flórsykur
42g kakó
40 g rjómi
Samsetning
Flórsykur til að strá ofan á