Barna bollakökur með Opal hlauphringja kremi
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fyrir 12-14 manns
Aðferð – Kaka
1. Hitið ofninn í 175°c
2. Blandið saman þurrefnunum í stóra skál
3. Bætið restinni af hráefnunum útí og hrærið saman þar til engir kekkir eru.
4. Hellið deiginu út í bollakökuform og bakið í miðjum ofni í 18-20 mínútur eða þar til tannstöngull kemur hreinn út þegar þið stingið í hana. Ég myndi kíkja á þær eftir 18. mínútur
5. Látið kökurnar kólna alveg áður en þið setjið kremið á hana.
Aðferð - Nammikrem með Opal hlauphringjum
1. Setjið Opal hlauphringina og rjómann í lítinn pott og hitið við vægan hita. Hrærið reglulega þar til hringirnir hafa bráðnað alveg saman við rjómann. Látið blönduna kólna niður í stofuhita.
2. Þeytið mjúkt smjörið í nokkrar mínútur. Bætið flórsykrinum smám saman út í og þeytið áfram þar til kremið er orðið létt og ljóst.
3. Hellið Opal hlauphringja blöndunni í mjórri bunu út í kremið á meðan þeytt er á meðalhraða. Þeytið áfram í stutta stund þar til kremið er orðið slétt og mjúkt.
4. Sprautið kreminu á bollakökurnar þegar þær hafa kólnað alveg. Fyrir skemmtilega og litríka kremtoppa má skipta kreminu í þrjá hluta og lita einn bleikan með rauðum matarlit, annan gulan og þann þriðja grænan. Leggið plastfilmu á borðið og setjið kremið í þrjár lengjur hlið við hlið, eina í hverjum lit. Rúllið plastfilmunni utan um kremið og snúið upp á endana. Klippið annan endann af alveg við kremið og setjið rúlluna í sprautupoka með stjörnustút, með opna endann að stútnum. Sprautið kreminu á bollakökurnar í hringlaga hreyfingu til að mynda marglita kremtoppa.
5. Skreytið að vild með Opal hlauphringjum.
Innihaldsefni
Hráefni Kakan
7½ dl hveiti
3 dl sykur
3 tsk lyftiduft
2 tsk matarsódi
1 tsk salt
7½ dl mjólk eða haframjólk
2 dl matarolía
1½ tsk vanilludropar
2 msk eplaedik
Nammikrem með Opal hlauphringjum
300 g smjör, við stofuhita
400 g flórsykur
½ dl rjómi
1½ dl Opal hlauphringir