Appelsínusúkkulaðimús
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fyrir 6-8 manns
Aðferð
1. Þeytið 300 ml af rjóma í skál og geymið í kæli.
2. Hitið restina af rjómanum (250 ml), um helminginn af sykrinum og eggjarauðurnar saman í potti á lágum hita þar til blandan er rétt undir suðumarki, og hrærið stöðugt á meðan. Passið að blandan sjóði ekki.
3. Saxið súkkulaðið og setjið í skál, hellið heitri rjómablöndunni yfir og leyfið að standa í 2-3 mínútur. Hrærið svo saman þar til allt súkkulaðið hefur bráðnað.
4. Þeytið eggjahvíturnar og restina af sykrinum í hrærivél þar til blandan er stíf.
5. Veltið helmingnum af þeytta rjómanum varlega saman við súkkulaðiblönduna, síðan helmingnum af þeyttu eggjahvítunum og svo koll af kolli þar til allt er komið saman. Setjið í stóra skál eða glös sem þið viljið bera músina fram í.
6. Kælið í að minnsta kosti 8 klukkustundir eða yfir nótt.
Innihaldsefni
Hráefni
4 egg (rauður og hvítur aðskildar)
55 g sykur
300 g Síríus suðusúkkulaði með appelsínubragði
550 ml rjómi