Brownies með tvöföldu súkkulaði

Brownies 5 600X900

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
  1. Hitið ofninn í 170°C og klæðið ferkantað kökuform (um 25 x 25 cm) að innan með bökunarpappír (svo hægt sé að lyfta kökunni upp).
  2. Bræðið saman smjör og 100 g suðusúkkulaði og leyfið að rjúka úr blöndunni á meðan annað er undirbúið.
  3. Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós, bætið þá vanilludropum og smjörblöndunni varlega saman við.
  4. Næst má sigta hveiti, kakó og salt í skálina og blanda rólega saman við.
  5. Að lokum fer saxaða súkkulaðið (báðar tegundir) í skálina og blandið létt saman.
  6. Hellið í formið og bakið í um 30-35 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á endanum en ekki blautu deigi.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
  • 170 g smjör
  • 100 g Síríus suðusúkkulaði ( brætt)
  • 330 g sykur
  • 3 egg
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 130 g hveiti
  • 80 g bökunarkakó
  • ½ tsk. salt
  • 100 g Síríus suðusúkkulaði (saxað)
  • 100 g Síríus rjómasúkkulaði (saxað)