Eitt Sett S’mores bitar

Q9A1985

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Aðferð
1. Hitið ofninn í 180°C.
2. Myljið Tomma og Jenna kexið smátt og blandið saman við bráðið smjör. Þrýstið
blöndunni í form (ca. 20 x 20 cm) klætt með bökunarpappír.
3. Bakið botninn í 8 mínútur.
4. Raðið Eitt Sett stöngunum yfir botninn og bakið í 1–2 mínútur til viðbótar, eða þar til
súkkulaðið byrjar að bráðna.
5. Dreifið mini sykurpúðunum yfir og bakið í 5–8 mínútur, eða þar til þeir eru gullin brúnir.
6. Leyfið að standa í a.m.k. 10 mínútur áður en skorið er í bita. Best er hita hnífinn með
heitu vatni og skera svo í gegn svo að sykurpúðarnir festast ekki við.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Kexbotn
● 1 pakki Tomma og Jenna kex (175 g)
● 75 g smjör, brætt


Fylling
● 7½ Eitt Sett stangir
● 150 g mini sykurpúðar