Heit smákaka og ís
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
- Hitið ofninn í 180°C og setjið bökunarpappír í ofnskúffu.
- Bræðið smjörið við meðalháan hita þar til það fer að brúnast og þið finnið ilmandi karamellulykt. Hrærið vel í allan tímann og takið af hellunni þegar það fer að dökkna og hellið yfir í skál til að flýta fyrir því að það kólni aðeins.
- Setjið báðar tegundir af sykri í skál og hrærið eggjunum saman við, næst fer brúnaða smjörið saman við.
- Bætið þá vanilludropum og rjóma saman við og að lokum öllum þurrefnum (hveiti, lyftidufti, matarsóda og salti).
- Saxið suðusúkkulaðið gróft niður og vefjið saman við deigið með sleikju.
- Skiptið deiginu niður á tvær ofnskúffur og hafið gott bil á milli. Gott er að nota ísskeið eða annað til að skammta deiginu á skúffuna (hver kaka er um 70 g af deigi).
- Bakið í 10-12 mínútur, takið úr ofninum og stráið smá grófu salti yfir.
- Setjið tvær kúlur af ís í hverja skál og eina köku ofan á, njótið strax.
- Ef þið viljið ekki baka allar kökurnar í einu er sniðugt að plasta hverja deigkúlu og setja í kæli eða frysti og baka síðan jafnóðum þegar þið viljið volga smáköku á ís.
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
Heit smákaka og ís
Uppskrift gefur um 12 kökur
- 110 g smjör
- 160 g púðursykur
- 80 g sykur
- 2 egg
- 1 tsk. vanilludropar
- 1 msk. rjómi
- 240 g hveiti
- ½ tsk. lyftiduft
- ½ tsk. matarsódi
- ¼ tsk. salt
- 150 g Síríus suðusúkkulaði
- Gróft salt
- Vanilluís