Hvítt súkkulaðisalami
Uppskrift
Leiðbeiningar
Um 20 bitar
Aðferð
1. Saxið hvíta súkkulaðið og setjið í lítinn pott ásamt smjörinu og rjómanum. Hitið við vægan hita og hrærið stöðugt þar til súkkulaðið hefur bráðnað. Gætið þess að það brenni ekki við. Takið pottinn af hellunni og látið blönduna kólna aðeins.
2. Myljið hafrakexið og hrærið því saman við súkkulaði blönduna. Bætið trönuberjunum og pistasíuhnetunum út í og hrærið vel þar til allt hefur blandast jafnt saman.
3. Setjið blönduna á stórt stykki af plastfilmu og mótið í rúllu, um 4-5 cm í þvermál. Vefjið plastfilmunni þétt utan um rúlluna og snúið upp á endana svo hún haldi lögun sinni.
4. Setjið rúlluna í ísskáp í að minnsta kosti 2 klukkustundir eða þar til hún er orðin alveg stíf.
5. Fjarlægið plastfilmuna og veltið rúllunni upp úr flórsykri þannig að hún líkist salami.
6. Skerið súkkulaðisalamíið í sneiðar og berið fram.
Innihaldsefni
Súkkulaðisalami
2 pokar Síríus hvítir súkkulaðidropar
25 g smjör
1 dl rjómi
1 dl þurrkuð trönuber
1 dl pistasíuhnetur, án skelja
8 kexkökur af Brago stafakexi
Skreyting
½ dl flórsykur