Karamellukurls bitar með ostakökutoppi

Linda Ben X Nói Síríus Mars 2026 2 3.2

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Aðferð:

  1. Setjið súkkulaðiþurrefnablönduna í skál ásamt eggjum, olíu/bræddu smjöri og vatni, hrærið saman. Bætið karamellukurlinu út í deigið og hellið í smurt 30×40 cm stórt form (eða sambærilega stórt) og bakið í 16-20 mín eða þar til endarnir eru fullbakaðir en miiðjan ennþá örlítið blaut inní. Kælið kökuna og skerið í litla bita.
  2. Bræðið rjómasúkkulaði yfir vatnsbaði og leyfið því svo aðeins að kólna.
  3. Setjið rjómaost og brædda rjómasúkkulaðið í skál og blandið saman.
  4. Þeytið rjóma og blandið varlega saman við rjómaostasúkkulaðiblönduna með sleikju. Það er þægilegt að setja ostakökudeigið í sprautupoka hér en ekki nauðsynlegt.
  5. Þegar kakan er orðin alveg köld, setjiði örlítið af ostakökunni ofan á hvern kökubita. Skreytin hvern bita með berjum og karamellukurli.

 

Uppskrift frá Lindu Ben

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Karamellukurls bitar með ostakökutoppi

  • Ljúffeng súkkulaðikaka Lindu Ben – þurrefnablanda
  • 4 egg
  • 2 dl olía/brætt smjör
  • 1 dl vatn
  • 150 g Síríus sælkerabaksturs karamellukurl

Ostakaka

  • 200 g rjómasúkkulaði
  • 200 g rjómaostur
  • 400 ml rjómi
  • Síríus sælkerabaksturs karamellukurl
  • Ber (ég notaði brómber en það er alveg valfrjálst hvernig ber)