Kleinuhringir með Eitt Sett fyllingu

Kleinuhringir Eitt Sett Landscape

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Um 20 stykki

Aðferð – Kleinuhringir

1. Blandið þurrgerinu saman við um helminginn af hveitinu í hrærivélarskál. Bætið mjólk, sykri, eggi, vanillusykri og mjúku smjöri út í og hnoðið saman í klístrað deig.

2. Bætið saltinu út í og síðan meira hveiti smám saman á meðan deigið er hnoðað. Það er ekki víst að þurfi að nota allt hveitið.

3. Hnoðið deigið í hrærivél á meðalhraða í að minnsta kosti 10 mínútur. Deigið á að vera mjúkt og örlítið klístrað en meðfærilegt og byrja að losna frá hliðum skálarinnar.

4. Leggið viskustykki eða plastfilmu yfir skálina og látið deigið hefast í um klukkustund, eða þar til það hefur um það bil tvöfaldast að stærð. Á meðan deigið hefast er gott að útbúa Eitt Sett ganache-ið svo það nái að kólna og þykkna.

5. Setjið deigið á létt hveitistráð borð og fletjið það út þar til það er um 1,5 cm á þykkt. Skerið út hringi með glasi eða kringlóttu kökumóti sem er um 7 cm í þvermál.

6. Leggið kleinuhringina á bökunarpappír sem hefur verið stráð örlitlu hveiti yfir.

7. Breiðið hreint viskustykki eða plastfilmu lauslega yfir og látið hefast aftur í um klukkustund, eða þar til þeir hafa stækkað vel.

8. Hitið olíuna í 175°C í djúpum, þykkbotna potti. Gætið þess að fylla pottinn ekki meira en til hálfs af olíu. Djúpsteikið nokkra kleinuhringi í einu í um 1–1½ mínútu á hvorri hlið, eða þar til þeir eru fallega gullinbrúnir.

9. Takið kleinuhringina upp úr olíunni með gataspaða og látið umframolíu renna af á eldhús- pappír. Veltið þeim upp úr sykri á meðan þeir eru enn heitir og látið þá síðan kólna alveg.

10. Setjið Eitt Sett ganache-ið í sprautupoka með kringlóttum stút. Gerið lítið gat á hlið hvers kleinuhrings, stingið stútnum vel inn og fyllið ríkulega með ganache-inu.

11. Skreytið að lokum með örlitlu Eitt Sett kurli að vild.

Aðferð – Eitt Sett ganache

1. Setjið Eitt Sett kurlið og rjómann í lítinn pott og hitið við vægan hita. Hrærið reglulega þar til kurlið hefur bráðnað eins vel og hægt er saman við rjómann.

2. Saxið suðusúkkulaðið í smáa bita. Takið pottinn af hitanum og bætið súkkulaðinu saman við. Látið standa í 1–2 mínútur og hrærið síðan þar til súkkulaðið hefur bráðnað og blandan er orðin slétt.

3. Bætið smjörinu og saltinu saman við og hrærið þar til smjörið hefur bráðnað alveg.

4. Látið ganache-ið kólna og þykkna þar til það hefur náð mjúkri áferð. Hrærið öðru hverju á meðan það kólnar.

5. Setjið ganache-ið í sprautupoka og fyllið kleinuhringina með því þegar þeir hafa kólnað alveg.

Uppskrift úr Kökubæklingi 2026

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Kleinuhringir

  • 7 g þurrger

  • 2½ dl mjólk, við stofuhita

  • 1 dl sykur

  • 1 egg, við stofuhita

  • 2 tsk vanillusykur

  • Lítil klípa af salti– 7–8 dl hveiti

  • 75 g smjör (við stofuhita)

Eitt Sett ganache

  • 1 poki Eitt Sett lakkrískurl

  • 2½ dl rjómi

  • 200 g Síríus suðusúkkulaði

  • 25 g smjör

  • Lítil klípa af salti

Djúpsteiking og skreyting

  • 1½ lítri bragðlaus olía til djúpsteikingar, t.d. repju- eða sólblómaolía

  • Sykur til að velta kleinuhringjunum upp úr

  • Eitt Sett lakkrískurl til skreytingar að vild