Mini pavlovur með jarðaberjum og karamellusósu
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
- Stillið ofninn á 100ºC, undir og yfir hita.
- Notið fullkomlega hreina hrærivéla skál, setjið eggjahvíturnar í skálina ásamt cream of tartar og notið þeytarann.
- Blandið kornsterkjunni út í sykurinn, hrærið saman.
- Þeytið eggjahvíturnar mjög rólega fyrst, setjið 1 msk af sykri út í eggjahvíturnar í einu á ca ½ mín fresti, aukið hraðann hægt og rólega eftir því sem þið setjið meiri sykur út í (þolinmæðisverk en þó þess virði).
- Blandið saman vanilludropum og hvíta borðedikinu, hellið blöndunni út í þegar eggjahvíturnar hafa náð stífum toppum og hrærið saman við í ½ mín lengur.
- Setjið smjörpappír á ofnplötu, setjið deigið í sprautupoka með meðalstórum stjörnustút og sprautið litla hringi, u.þ.b. 6-7 cm breiða hringi.
- Bakið í u.þ.b. 40-50 mín.
- Bræðið saman karamellur og rjóma í potti, hrærið þar til samlagað. Leyfið sósunni að kólna að stofuhita.
- Þeytið rjómann og sprautið á kökurnar með sama sprautustút. Skerið jarðaberin í 4 hluta og raðið 2 bitum af jarðaberjum ofan á hverja köku. Setjið karamellusósu yfir.
Uppskrift frá Lindu Ben
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
Mini pavlovur með jarðaberjum og karamellusósu
- 6 eggjahvítur
- 3,5 dl sykur
- 2 tsk kornsterkja (maizenamjöl)
- 1/8 tsk cream of tartar
- 2 tsk vanilludropar
- 2 tsk hvítt borðedik
Karamellusósa
- 120 g Töggur rjómakaramellur frá Nóa Síríus
- 1 dl rjómi