Páska pavlovur

IMG 1134

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

 

Pavlovur

1. Hitaðu ofninn í 140°C með blæstri. Settu bökunarpappír á tvær bökunarplötur og leggðu þær til hliðar.

2. Settu eggjahvítu, sykur og edik í stóra skál og þeyttu í hrærivél eða með handþeytara í nokkrar mínútur, þar til marengsinn er orðinn stífþeyttur.

3. Bættu flórsykrinum varlega saman við og hrærðu í 2 mínútur til viðbótar á miðlungs eða miklum hraða. Marengsinn getur misst aðeins úr stífleikanum á þessum tímapunkti, en ef þú hrærir í nokkrar mínútur í viðbót ætti hann að stífna aftur.

4. Settu marengsinn í sprautupoka með stjörnustút og sprautaðu út litlum pavlovu hreiðrum með holu í miðjunni. Þú getur líka notað matskeið til að móta pavlovurnar en mundu bara að gera litla holu í miðjuna fyrir fyllinguna.

5. Bakaðu pavlovurnar í 15–20 mínútur.

6. Slökktu síðan á ofninum og láttu þær kólna inni í ofninum í að minnsta kosti 2 klukkustundir, en helst yfir nótt.

 

Hindberjarjómi

Þeyttu rjómann þar til hann er léttþeyttur. Hrærið hindberjasultunni út í með sleikju og færið síðan rjómann í sprautupoka með stjörnustút.

 

Samsetning

1. Bræðið suðusúkkulaðidropana og fylltu botninn á hverri pavlovu með smá af súkkulaðinu. Settu síðan nokkur hindber ofan á og sprautaðu hindberjarjómanum yfir.

2. Taktu páskaeggin úr álpappírnum og settu eitt egg yfir hverja pavlovu.

3. Geymist best í kæli. Hægt er að bera fram strax eða innan nokkurra klukkustunda.

 

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Gerir um 15 stk

Pavlovur:

  • 4 eggjahvítur
  • 140 g sykur
  • 80 g flórsykur
  • ½ tsk edik

Hindberja rjómi:

  • 500 g rjómi
  • 150 g hindberja sulta


Samsetning:

  • 1 poki Nóa Siríus suðusúkkulaði dropar (150g)
  • 15 stk páskaegg nr 1 (u.þ.b 4 kassar)Hindber