Páska súkkulaðimús

Image00003 (1)

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Hindberja sulta

Setjið hindberin og sykur í pott og hrærið yfir miðlungs hita í 5-10 mín eða þar til að öll berin hafa maukast og sultan virðist þykkari.

Hellið síðan í krukku eða skál og leyfið alveg að kólna.


Dökk Súkkulaðimús

Hrærið rjóma, mjólk, sykur og eggjarauðum í pott og færið síðan yfir á lágan hita og hrærið stöðugt þar til blandan byrjar að þykkjast smá eða komin upp í 65-70 C.

Takið af hitanum og hellið í gegnum sigti yfir súkkulaði og sjávar salt.

Leyfið að standa í 5 mín.

Hrærið síðan með töfrasprota og hellið í miðlungs skál.

Þeytið 450g. Rjóma þar til að hann er frekar stífþeyttur.

En ekki of mikið því þá breytist hann í smjör.

Hrærið súkkulaði blöndunni saman við rjóman í 2-3 skömmtum með písk og svo með sleikju.

Færið síðan músina í sprautu poka með stjörnu stút og notið strax.

 

Sametning

Takið páskaeggin úr pakkningunum og skerið varlega toppinn á páskaeggjunum með beittum hníf.

Komið eggjunum fyrir í eggjabakka svo að þau standa upprétt.

Fyllið síðan botninn með smá hindberjasultu og sprautið síðan súkkulaði músinni með sprautupoka ofan í.

Kælið inn í ískáp í 2 klst eða yfir nótt.

Áður en er borið fram er hægt að setja hindber ofan á hverja og eina mús.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Hindberja sulta

300 g frosin hindber

100 g sykur

Safi úr ½ sítrónu


Dökk Súkkulaðimús

90 g rjómi

70 g mjólk

20 g sykur

1 eggjarauða

150 g BARON súkkulaði

Nokkrar klípur af sjávarsalti

450 g þeyttur rjómi

 

Samsetning

4 kassar rjómasúkkulaði egg nr 1 (16 páskaegg)

Hindber