Páskaeggja rjómasúkkulaðiostakaka

Picture1

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

1. Bræðið rjómasúkkulaði yfir vatnsbaði og leyfið því svo aðeins að kólna.

2. Takið páskaeggin úr álumbúðunum og setjið á skurðarbretti.

3. Hitið mjög beittan hníf undir heitu vatni þar til hnífurinn er orðinn mjög heitur. Þurrkið vatnið af hnífnum og skerið páskaeggið mjög varlega í sundur, leyfið heita hnífnum að bræða eggið rólega í staðinn fyrir að nota kraft því annars á eggið í hættu á að brotna í mola.

4. Setjið rjómaost og brædda rjómasúkkulaðið í skál og blandið saman.

5. Þeytið rjóma og blandið varlega saman við rjómaostasúkkulaðiblönduna með sleikju. Það er þægilegt að setja ostakökudeigið í sprautupoka hér en ekki nauðsynlegt.

6. Sprautið eða notið skeið til að fylla páskaeggjaskeljarnar af ostakökunni. Skreytið með muldu súkkulaðikexi.

 

Uppskrift frá Lindu Ben

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
  • 8 stk Síríus Suðusúkkulaðiegg nr 1
  • 200 g rjómasúkkulaði
  • 200 g rjómaostur
  • 400 ml rjómi
  • Súkkulaðikex til að mylja ofan á