Pavlovur með lakkríssósu og hindberjum

Pavlova 13 1024X683

Uppskrift frá Gotterí og gersemar.

 

Þessi uppskrift miðar við um 15 stykki.

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Pavlovur

  1. Hitið ofninn í 110°C.
  2. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær fara aðeins að freyða.
  3. Bætið sykrinum saman við í nokkrum skömmtum og þeytið þar til topparnir halda sér og þið sjáið nánast engar sykuragnir lengur.
  4. Setjið bökunarpappír í ofnskúffu og sprautið litlar skálar með stórum stjörnustút. Gott er að gera botn fyrst og svo eins og tvo hringi yst á botninum svo úr verði nokkurs konar skál/hreiður til að hægt sé að setja rjómann ofan í.
  5. Bakið í 80 mínútur, slökkvið þá á ofninum og leyfið pavlovunum að kólna niður með honum.
  6. Hægt er að gera pavlovur með nokkurra daga fyrirvara og geyma í plasti. Síðan bara fylla með nokkurra klukkustunda fyrirvara eða kvöldinu fyrir notkun.

 

Lakkríssósa

  1. Eitt Sett kúlurnar og rjóminn brætt saman í potti við meðalháan hita þar til kúlurnar hafa bráðnað.
  2. Leyfið hitanum síðan að rjúka vel úr og sósunni að ná stofuhita áður en þið hellið henni yfir rjómann.

Það er svo einfalt að útbúa lakkríssósu með Eitt sett kúlum + rjóma og hana má að sjálfsögðu líka nota út á ís eða annað góðgæti!

 

Rjómafylling og samsetning

  1. Þeytið saman rjóma og vanillusykur, setjið í sprautupoka og fyllið pavlovurnar vel, ofan í holuna og aðeins upp á kantana.
  2. Setjið væna matskeið af sósu yfir rjómann á hverri köku, smá Eitt Sett kurl og 1-3 hindber.
  3. Geymið í kæli í að minnsta kosti 4 klukkustundir eða yfir nótt.

 

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Pavlovur

  • 4 eggjahvítur
  • 240 g púðursykur

 

Lakkríssósa

  • 1 poki Eitt Sett kúlur frá Nóa Síríus (150 g)
  • 70 ml rjómi

 

Rjómafylling

  • 500 ml rjómi
  • 2 tsk. vanillusykur
  • Fersk hindber (um 250 g)
  • Eitt Sett kurl frá Nóa Síríus (um 100 g)