Súkkulaði og hindberja makkarónur

IMG 1223

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

1. Sigtaðu möndlumjöl og flórsykur saman í skál (mjög mikilvægt fyrir slétt yfirborð).

2. Settu eggjahvítu og 3 msk af sykrinum í hitaþolna skál.

3. Hitaðu yfir vatnsbaði og hrærðu stöðugt með písk þar til blandan er volg (ca. 40–50°C).

4. Taktu skálina af hitanum og byrjaðu að þeyta í hrærivél. Bættu restinni af sykrinum út í, í nokkrum skömmtum á meðan þú þeytir. Þeyttu þar til stífur og glansandi marengs myndast. Bættu síðan bleikum matarlit út í, hafðu í huga að liturinn dofnar aðeins í bakstri.

5. Blandaðu möndlumjölsblöndunni varlega saman við marengsinn með sleikju.

6. Hér þarf að fara varlega og varast að hræra hvorki of mikið né of lítið. Hrærið þar til deigið rennur hægt í stöðugri bunu (ekki of þykkt, ekki of þunnt). Blanda á að vera teygjanleg og fín. Miðað er við að vefja á bilinu 65–75 sinnum til að ná réttri áferð.

7. Settu deigið í sprautupoka og sprautaðu litla hringlaga köku á bökunarpappír.

8. Láttu makkarónuna standa í 20–40 mínútur þar til hún myndar þurra húð (má snerta án þess að festist).

9. Bakaðu við 150°C í 12–15 mínútur.

10. Leyfðu henni að kólna alveg áður en hún er tekin af pappírnum.

 

Súkkulaði ganache:

1. Hitaðu saman rjómann og smjörið að suðu (ekki sjóða lengi).

2. Helltu yfir saxað súkkulaði og sjávarsalt.

3. Láttu standa í 1 mínútu og hrærðu svo þar til ganache-ið verður slétt.

4. Kældu þar til það þykknar.

 

Samsetning:

1. Taktu tvær makkarónuskeljar.

2. Settu hring af súkkulaði-ganache á aðra skelina.

3. Settu smá hindberjasultu í miðjuna.

4. Leggðu hina skelina ofan á.

 

Makkaróna verður best daginn eftir. Best er að geyma hana í kæli í lokuðu boxi til að leyfa henni að „þroskast“.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Gerir um 15-20 makkarónur

 

Makkarónu skeljar:

  • 100 g eggjahvítur
  • 100 g sykur
  • 100 g möndlumjöl
  • 100 g flórsykur
  • Bleikur matarlitur

 

Súkkulaði ganache

  • 150 g Nóa Siríus suðusúkkulaði
  • 100 ml rjómi
  • 50 g smjör
  • Klípa sjáfarsalt

 

Fylling

  • Hindberjasulta (tilbúin eða heimagerð)