Súkkulaðibomba með karamellusúkkulaðimús

Linda Ben X Nói Síríus Apríl 2026 1 3.2

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Súkkulaðikökubotn

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið þurrefnablönduna í skál ásamt eggjum, olíu/smjöri og vatni, hrærið saman í 3-4 mín þar til áferðin verður fallega glansandi og slétt.
  3. Hellið deiginu í smurt 30×40 cm kökuform (eða sambærilega stórt) og bakið í 20-25 mín eða þar til bökuð í gegn. Kælið kökuna.

 

Karamellusúkkulaðimús

  1. Bræðið saman súkkulaði og 1 dl rjóma, kælið að stofuhita.
  2. Þeytið rjómann og blandið saman við kældu súkkulaðibráðina varlega með sleikju.

 

Dökkur súkkulaðihjúpur

  1. Bræðið helminginn af súkkulaðinu yfir vatsnbaði.
  2. Setjið það sem eftir er af súkkulaðinu ofan í brædda súkkulaðið og látið það bráðna saman við mjög hægt og rólega. Þið gætuð þurft að setja það aftur ofan í vatnsbaðið í pínu stund til að allt súkkulaðið bráðni, en passið að súkkulaðið hitni ekki of mikið, því þá verður það ekki stökkt þegar það stirðnar aftur.

 

Karamellukurls botn

  1. Byrjið á að baka kökuna samkvæmt leiðbeiningum hér fyrir ofan. Kælið kökuna. Notið glas eða annað til að skera út hringi sem eru jafn stórir og kúlurnar á sílíkon mótinu
  2. Takið kúlulaga sílíkon form og setjið súkkulaðið í botninn á kúlunum, hallið forminu á alla kanta svo súkkulaðið stirðni jafnt um allt formið, hér getur líka verið gott að nota skeið eða pensil til að dreifa súkkulaðinu. Leyfið súkkulaðinu að stirðna á meðan þið gerið súkkulaðimúsina.
  3. Útbúið karamellusúkkulaðimúsina samkvæmt leiðbeningum hér fyrir ofan. Setjið mús ofan í hverja kúlu en ekki fylla alveg, skiljið c.a. ½ cm eftir.
  4. Setjið útskornu kökurnar ofan á karamellusúkkulaðimúsina, setjið í frysti í 3-4 klst.
  5. Bræðið suðusúkkulaðið yfir vatnsbaði og setjið í skál.
  6. Setjið karamellukurlið í skál
  7. Takið kökurnar úut úr frysti og varlega úr sílíkonforminu. Setjið brætt súkkulaði á beru hliðarnar á kökubotninum og dýfið svo ofan í karamellukurls skálina svo hliðarnar þekjist karamellukurli.
  8. Spreyjið kúlurnar með bronslituðu litarpúðri.

 

Uppskrift frá Lindu Ben

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Súkkulaðikökubotn

  • Ljúfffeng súkkulaðikaka Lindu Ben – þurrefnablanda
  • 3 egg
  • 1 ½ dl bragðlítil olía eða brætt smjör
  • 1 dl vatn

 

Karamellusúkkulaðimús

  • 200 g Síríus suðusúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti
  • 400 g rjómi

 

Dökkur súkkulaðihjúpur

 

Karamellukurls botn

  • 100 g Síríus suðusúkkulaði
  • 150 g Síríus karamellukurl