Töggu og súkkulaðimús
Uppskrift
Leiðbeiningar
Súkkulaðimús
1. Brjótið suðusúkkulaðið í smærri bita og setjið í miðlungsstóra skál. Bætið við klípu af sjávarsalti og leggið til hliðar.
2. Hrærið rjóma, mjólk og eggjarauðum saman í potti og setjið yfir lágan hita. Hrærið stöðugt með písk þar til blandan fer að þykkna eða nær 65–70°C. Takið pottinn af hitanum og sigtið blönduna yfir súkkulaðið og sjávarsaltið. Leyfið að standa í um 5 mínútur.
3. Hrærið varlega þar til súkkulaðið hefur bráðnað og blandan er slétt og samfelld. Setjið til hliðar.
4. Þeytið eggjahvíturnar með sykri þar til þær mynda mjúka toppa og halda forminu létt, án þess að vera of stífþeyttar.
5. Hrærið eggjahvíturnar varlega saman við súkkulaðiblönduna í þremur skömmtum með sleif, þannig að loftið haldist í blöndunni.
6. Skiptið búðingnum niður í 4–5 glös, fyllið þau um það bil hálfa leið, og kælið í að minnsta kosti 6 klukkustundir, helst yfir nótt, áður en borið er fram.
Töggur karamella
Samsetning
1. Skammtið karamellunni ofan á hverja mús og dreifið henni varlega og jafnt yfir. Setjið í ísskáp og kælið í um 15 mínútur.
2. Bræðið því næst súkkulaðið og dreifið þunnu, sléttu lagi yfir karamelluna. Stráið örlitlu sjávarsalti yfir.
3. Kælið aftur í ísskáp í um 15 mínútur áður en borið er fram.
Innihaldsefni
Gerir 4–5 stk
Hráefni
● 3 egg (ca. 90 g eggjarauður, 150 g eggjahvítur)
● 180 g rjómi
● 65 g mjólk
● 200 g Siríus suðusúkkulaði
● 25 g sykur
● ½ tsk salt
Töggur karamella
● 1 poki töggur
● 50 g rjómi
Samsetning
● 60 g suðusúkkulaði
● sjávarsalt