Klassískir kökupinnar
Uppskrift
Leiðbeiningar
Súkkulaðikaka
1. Hitið ofninn í 180 gráður og smyrjið eitt 21cm hringlaga kökuform með smjöri eða olíu og
leggið til hliðar.
2. Hrærið öll þurrefnin saman í stórri skál og setjið til hliðar.
3. Hrærið saman öll blautefnin í minni skál. Hrærið síðan blautefnin saman við þurrefnin og
hrærið þar til að það eru engir kekkir af hveiti eftir.
4. Hellið deiginu í formið og bakið í 18-25 mín.
5. Leyfið kökunni alveg að kólna.
Súkkulaði krem:
1. Bræðið súkkulaði og rjóma í örbylgju ofni eða í litlum potti.
2. Hrærið stöðugt svo að ekkert brenni.
3. Hellið í skál og leyfið að kólna.
Samsetning
1. Myljið kökuna í skál þar til hún er orðin að fínni mylsnu.
2. Setjið smá af ganache út í í einu og blandið saman við kökumylsnuna. Deigið á að vera
mjúkt og haldast saman þegar þið mótið kúlu – ekki of blautt.
3. Rúllið í litlar kúlur (ca. 1 msk) Setjið á bakka með bökunarpappír og kælið í ísskáp í
20–30 mínútur. Bræðið smá mjólkursúkkulaði og dýfið endanum á kökupinnanum í
súkkulaðið og stingið honum síðan í miðja kökukúluna. Kælið aftur í 10–15 mínútur svo
það festist vel.
4. Bræðið restina af rjómasúkkulaðinu og dýfið hverri kúlu varlega ofan í og snúið svo hún
hjúpist alveg. Leyfið umfram súkkulaði að leka af.
5. Stráið súkkulaðiperlum yfir áður en súkkulaðið storknar. Leggið köku pinnana á
bökunarpappír til að storkna.
6. Kökupinnarnir geymast í loftþéttu boxi í ísskáp í allt að 4–5 daga.
Innihaldsefni
Súkkulaði botnar:
● 260g hveiti
● 400g sykur
● 75g Nóa Siríus kakó
● 2 tsk lyftiduft
● 1 1/2 tsk matarsódi
● 1 tsk salt
● 240g kalt kaffi
● 255g súrmjólk
● 110g olía
● 2 egg
● 2 tsk vanilludropar
Súkkulaði ganache krem:
● 100 g Nóa Siríus Suðusúkkulaði
● 80 g rjómi
Hjúpur & skraut
● 2 pokar rjómasúkkulaði dropar (300 g.)
● 1 poki Súkkulaðiperlur frá Nóa Síríus (150 g.)
● Pinnar