Karamellu Kropp ís
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
- Setjið mjólk, rjóma og súkkulaðibúðing í skál og blandið saman. Hellið blöndunni í Ninja creami glas og frystið í a.m.k. 24 klst.
- Setjið glasið í Ninja creami vélina og stillið á light icecream.
- Skafið meðfram hliðunum á glasinu til að losa ísnálarnar. Bætið vel af Nóa Kroppi með karamellukurli og sjávarsalti út í. Stillið á +extra til að blanda saman við ísinn.
- Berið ísinn fram með meira Nóa Kroppi með karamellukurli og sjávarsalti yfir.
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
- 125 ml mjólk (má skipta út fyrir súkkulaði próteindrykk líka)
- 125 ml rjómi
- 1 msk súkkulaðibúðingur
- Nóa Kropp með karamellukurli og sjávarsalti