Súkkulaðimús með myntubragði

Piparmyntumús (16)

Hátíðarleg útgáfa af hinni sívinsælu Súkkulaðimús.

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

GUppskrift dugar í um 6 glös/skálar

 

  1. Saxið súkkulaðið gróft niður og bræðið í vatnsbaði ásamt smjörinu.

  2. Takið af hitanum þegar bráðið og leyfið honum aðeins að rjúka úr.

  3. Þeytið á meðan rjómann í einni skál og pískið eggin saman í annarri. Best finnst mér að þeyta rjómann í tvennu lagi, 400 ml fyrir músina sjálfa og síðan hina 250 ml þegar músin er tilbúin fyrir skreytingu.

  4. Bætið eggjunum næst saman við súkkulaðiblönduna í litlum skömmtum og hrærið vel á milli.

  5. Takið þá um 1/3 af þeytta rjómanum og vefjið varlega saman við súkkulaðiblönduna með sleikju.

  6. Setjið síðan restina af rjómanum saman við og vefjið áfram varlega, þar til slétt og jafnlit súkkulaðimús hefur myndast.

  7. Setjið músina í sprautupoka og sprautið í skálar/glös og sléttið aðeins úr yfirborðinu.

  8. Þegar músin er tilbúin fyrir skreytingu má þeyta hinn hlutann af rjómanum (250 ml) og setja í sprautupoka með stórum stjörnustút og sprauta stjörnur svo þær þeki yfirborðið.

  9. Setjið að lokum Nóa Kropp Bismark yfir hverja mús og kælið í að minnsta kosti klukkustund áður en þið njótið.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
  • 300 g Síríus suðusúkkulaði með myntubragði
  • 70 g smjör
  • 3 egg
  • 400 ml þeyttur rjómi + 250 ml til skrauts = 650 ml
  • ½ poki Nóakropp Bismark (um 100 g)