Bananatertan hennar ömmu
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fyrir 10-12 manns
Aðferð – Kaka
1. Þeytið saman egg og sykur þar til létt og ljóst.
2. Sigtið þurrefnin út í og veltið rólega saman með sleikju.
3. Skiptið í tvö kökuform og bakið við 175°C í 20 mínútur.
4. Leyfið kökubotnunum að kólna alveg áður en þeir eru teknir úr forminu.
5. Smyrjið bananafyllingunni á milli botnanna og þekjið síðan kökuna með súkkulaðikreminu.
Aðferð – Fylling
1. Hrærið saman mjúkt smjör og flórsykur þar til létt og ljóst.
2. Stappið bananana með gaffli og blandið varlega saman við.
Aðferð – Krem
1. Hrærið saman mjúkt smjör, flórsykur og vanilludropa.
2. Bræðið suðusúkkulaði í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði.
3. Hellið bráðnu súkkulaðinu út í kremið í mjórri bunu á meðan þið hrærið á lágri stillingu.
Innihaldsefni
Hráefni
4 egg
2 ¼ dl sykur
1 dl hveiti
2 msk kakó
1 msk kartöflumjöl
1 tsk lyftiduft
Fylling
100 g smjör, við stofuhita
70 g flórsykur
2 bananar
Krem
100 g smjör
100 g flórsykur
200 g Síríus suðusúkkulaði
1 tsk vanilludropa