Marengs jólatré með berjum og Nóa Smá Kroppi
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fyrir 12-14 manns
Aðferð – Marengs
1. Hitið ofninn í 120°C með blæstri.
2. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær mynda mjúka toppa.
3. Bætið sykrinum smám saman út í, litlu í einu, og þeytið áfram á miklum hraða þar til marengsinn er orðinn stífur og glansandi.
4. Blandið möndluflögunum varlega saman við marengsinn með sleikju.
5. Skiptið marengsinum í fjóra misstóra hringi á tvær bökunar plötur með bökunarpappír, tvo hringi á hvora plötu. Gott er að teikna hringina á bökunarpappírinn til viðmiðunar. Miðið við að stærsti hringurinn sé um 26 cm í þvermál og að hver hringur sé um 4 cm minni en sá næsti á undan. Skiljið örlítið af marengsinum eftir til að móta lítinn topp sem verður fimmta og efsta hæð jólatrésins.
6. Bakið báðar plöturnar samtímis í ofninum við 120°C með blæstri í um 75 mínútur. Ef tími gefst til er gott að slökkva á ofninum og leyfa marengsinum að kólna inni í honum.
Aðferð – Rjómafylling
1. Þeytið rjómann þar til hann er orðinn léttur og þéttur.
2. Skerið stærri berin í minni bita og blandið þeim varlega saman við rjómann ásamt Nóa Smá Kroppinu.
3. Setjið stærsta marengsbotninn á kökudisk og dreifið hluta af rjómafyllingunni yfir. Leggið næststærsta botninn ofan á og endurtakið þar til allir botnarnir hafa verið lagðir saman, frá þeim stærsta til þess minnsta.
4. Setjið litla marengstoppinn efst á jólatréð.
5. Skreytið að vild með ferskum berjum og Nóa Smá Kroppinu.
Innihaldsefni
Marengs
6 eggjahvítur
300 g sykur
100 g möndluflögur
Rjómafylling
5 dl rjómi– Fersk ber eftir smekk, t.d. jarðaber og bláber
1 poki Nóa Smá Kropp