Piparkökukaka með rjóma- osta- og hvítsúkkulaðikremi
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fyrir 8-10 manns
Aðferð – Mjúk piparkaka
1. Hitið ofninn í 175°C.
2. Blandið þurrefnunum saman í skál.
3. Hrærið restinni af hráefnunum saman við þar til deigið er laust við kekki. Gætið þess að hræra ekki of mikið.
4. Smyrjið tvö 20 cm lausbotna kökuform með smjöri eða olíu og skiptið deiginu jafnt á milli formanna. Bakið í miðjum ofni í 35- 45 mínútur, eða þar til tannstöngull sem stungið er í miðju kökunnar kemur hreinn út.
5. Látið kökubotnana kólna alveg áður en kremið er sett á.
Aðferð – Rjómaostskrem
1. Þeytið rjómaostinn og smjörið saman með handþeytara eða hrærivél.
2. Bætið flórsykri og vanillu út í og þeytið þar til kremið er létt og loftkennt.
3. Bræðið um 2/3 af hvítu súkkulaði dropunum í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði, takið skálina af hitanum, bætið restinni af súkku laðinu út í og hrærið þar til allt er bráðið.
4. Hellið súkkulaðinu í mjórri bunu út í kremið á meðan þið hrærið á meðalháum hraða.
5. Smyrjið kreminu á kökuna og skreytið að vild.
Innihaldsefni
Mjúk piparkaka
6 dl hveiti
2 dl sykur
2 tsk lyftiduft
1½ tsk matarsódi
1 msk kanill
2 tsk malað engifer
2 tsk malaður negull– ½ tsk salt
6 dl mjólk
1 dl olía
2 tsk vanilludropar eða vanillusykur
1 msk eplaedik
Rjómaostskrem
200 g rjómaostur
1 poki Síríus hvítir súkkulaðidropar
100 g smjör, við stofuhita
1 tsk vanilludropar
400 g flórsyku