Ballerina brownie kökusneiðar
Uppskrift
Leiðbeiningar
Kökudeigslag:
1. Hitið ofninn í 175°C. Setjið 20 × 20 cm bökunarform með bökunarpappír.
2. Hrærið saman bræddu smjöri, púðursykri og sykri með písk. Bætið síðan eggi,
eggjarauðu og vanillu saman við og hrærið þar til blandan er slétt.
3. Bætið hveiti, matarsóda og salti saman við og hrærið rétt þar til allt hefur blandast saman.
Setjið síðan súkkulaðið út í og blandið þar til að súkkulaðið dreifist jafnt um deigið.
Þrýstið kökudeiginu jafnt í botn formsins.
Kexlag:
1. Raðið Ballerina Brownie kexinu yfir allt deigið í einu lagi og leggið til hliðar.
Brownie lag:
1. Bræðið saman smjörinu og súkkulaðinu yfir lágum hita.
2. Hrærið síðan kakódufti saman við og leyfið að kólna.
3. Þeytið síðan eggjum, eggjarauðu, sykri, flórsykri, vanillu og olíu út í.
4. Blandið hveiti og salti saman við og hrærið rétt þar til deigið hefur komið saman.
5. Hellið brownie deiginu yfir kexlagið og dreifið því varlega.
6. Bakið í 35–45 mínútur, eða þar til prjónn sem stungið er í miðjuna kemur út með
nokkrum mylsnum en ekki blautu deigi.
7. Látið brúnkurnar kólna alveg áður en er skorið er í bita.
Innihaldsefni
Kökudeigslag
● 110 g smjör, brætt
● 160 g púðursykur
● 50 g sykur
● 1/2 tsk vanilludropar
● 1 stórt egg
● 1 eggjarauða
● 2 tsk vanilludropar
● 190 g hveiti
● ½ tsk matarsódi
● ½ tsk salt
● 200 g Síríus Suðusúkkulaði, saxað
Kexlag
● 1 pakki Ballerina Brownie kex
Brownielag
● 100 g smjör
● 85 g Síríus Suðusúkkulaði
● 40 ml olía
● 40 g kakóduft
● 2 stór egg
● 1 eggjarauða
● 110g sykur
● 110g flórsykur
● 1½ tsk vanilludropar
● ¼ tsk salt
● 50 g hveiti