Brownie ostakaka í glasi
Uppskrift
Leiðbeiningar
Brownie botn
1. Hitið ofninn í 175°C.
2. Klippið bökunarpappír í botninn á um 25 x 35 cm skúffukökuform (svo hægt sé að toga kökuna upp á endunum) og spreyið vel að innan með matarolíuspreyi.
3. Þeytið saman smjör og sykur þar til létt og ljóst.
4. Bætið eggjunum saman við ásamt vanilludropum og skafið niður á milli þess sem þið þeytið vel.
5. Næst fer brætt suðusúkkulaði saman við og að lokum öll þurrefni og heitt vatn.
6. Hellið í formið, sléttið úr og bakið í um 25 mínútur.
7. Kælið alveg og lyftið kökunni síðan upp úr forminu og stingið út hringi með þeim glösum/skálum sem þið notið. Einnig hægt að nýta afganginn til að brjóta niður í botninn á fleiri glösum/skálum.
Ostakökufylling
1. Þeytið saman rjómaost, sykur, flórsykur og vanillusykur.
2. Bætið næst bræddu hvítu súkkulaði saman við.
3. Vefjið nú þeytta rjómanum varlega saman við og bætið hindberjum og Eitt sett kurli saman við og blandið létt.
4. Skiptið niður í glös/skálar yfir brownie-botninn og útbúið næst lakkrís-karamelluna.
Toppur og skraut
1. Bræðið saman Töggur og rjóma þar til slétt lakkríssósa hefur myndast, kælið stutta stund og hrærið reglulega í á meðan þar til sósan þykknar örlítið og mesti hitinn er farinn úr henni.
2. Setjið sósu yfir ostakökufyllinguna eftir smekk og toppið með ferskum hindberjum og Eitt sett kurli.
Innihaldsefni
Uppskrift fyrir um 6 glös/skálar
Brownie botn
- 150 g smjör við stofuhita
- 180 g sykur
- 2 egg
- 2 tsk. vanilludropar
- 200 g Síríus suðusúkkulaði (brætt)
- 80 g hveiti
- 1 msk. bökunarkakó
- ½ tsk. salt
- 2 msk. heitt vatn
Ostakökufylling
- 400 g rjómaostur við stofuhita
- 100 g sykur
- 50 g flórsykur
- 2 tsk. vanillusykur
- 100 g hvítt súkkulaði (brætt)
- 300 ml þeyttur rjómi
- 125 g hindber (stöppuð)
- 100 g Eitt sett kurl
Toppur og skraut
- 1 poki Töggur með hindberja- og lakkrísbragði
- 50 ml rjómi
- Fersk hindber
- Eitt sett kurl