Hindberja ostakaka með brownie botni og Nóa kroppi

Linda Ben X Nói Síríus Febrúar 2025 1 3

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.

Setjið smjör og sykur í pott, hitið rólega svo smjörið bráðni.

Haldið áfram að hita blönduna og leyfið henni að malla varlega í nokkrar mínútur eða þar til sykurkornin eru aðeins farin að minnka og blandan orðin meira sírópskennd.

Takið af hitanum og leyfið blöndunni að kólna svolítið.

Setjið hveiti og kakó saman í skál.

Hellið smjör og sykurblöndunni í skál, setjið suðusúkkulaðið ofan í skálina og hrærið þar til súkkulaðið hefur bráðnað saman við.

Bætið eggjunum út í blönduna og hrærið.

Bætið hveiti og kakó út í og hrærið.

Setjið smjörpappír í 40×30 cm stórt form (eða álíka stórt) og hellið deiginu í formið. Bakið í u.þ.b.20 – 30 mín (tími fer eftir hversu stórt form þið notið) eða þar til stökk himna hefur myndast yfir kökunni og endarnir eru bakaðir í gegn (kakan er ennþá klessuleg inn í miðjunni).

Kælið kökuna.

Hrærið saman rjómaost og flórsykur.

Setjið frosin hindber í pott, afþýðið berin varlega og merjið þau (notið lágan hita svo safinn sem myndast, gufi sem minnst upp). Hellið berjamaukinu ofan í sigti og sigtið fræin frá safanum. Kælið safann og hellið svo ofan í rjómaostablönduna, blandið saman við.

Þeytið 500 ml rjóma og veltið honum varlega saman við rjómaostablönduna með sleikju.

Hellið Nóa Kroppinu út í rjómaostablönduna og blandið honum saman við deigið, hellið því ofan á kaldan brownie botninn. Setjið í frysti í a.m.k. 8 klst.

Takið kökuna úr frystinum og skerið hana í 24 bita.

Þeytið 200 ml rjóma og sprauið rjóma ofan á hvern bita. Skreytið með ferskum hindberjum.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

180 g smjör

300 g sykur

200 g 70% súkkulaði

150 g hveiti

40 g kakó

4 egg

500 ml rjómi + 200 ml til að skreyta

400 g rjómaostur

2 dl frosin hindber

200 g flórsykur

200 g Nóa Kropp

150 g fersk hindber