Kaka með súkkulaðimús og karamellukrönsi

IMG 0644

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Súkkulaði botn:
1. Hitið ofninn á 180 C og smyrjið hringlaga glerform.
2. Bræðið saman smjör, súkkulaði og salt í miðlungs litlum potti og leggið til hliðar.
3. Þeytið síðan egg og sykur með hrærivél þar til létt og ljóst í u.þ.b. 5-10 mín.
4. Hrærið síðan súkkulaði blöndunni við eggja blönduna í nokkrum skömmtum.
5. Blandið síðan hveitinu varlega við blönduna og hellið í hringlaga glerform og bakið á 180 C í 20-25 mínútur.
6. Leyfið síðan að kólna alveg í u.þ.b 30 mín og kælið svo inn í ísskáp á meðan þið gerið súkkulaðimúsina.

Súkkulaðimús
1. Hellið súkkulaðidropunum í miðstóra skál með klípu af sjávarsalti og leggið til hliðar.
2. Hrærið saman rjóma, mjólk og eggjarauður í pott og færið síðan yfir á lágan hita. Hrærið stöðugt með písk þar til blandan byrjar að þykkjast smá eða komin upp í 65-70°c. Takið af hitanum og hellið í gegnum sigti yfir súkkulaðið og sjávar saltið. Leyfið að standa í 5 mín.
3. Hrærið síðan með töfrasprota og leggið til hliðar.
4. Þeytið eggjahvítur með sykri þar til þær halda forminu sínu rétt svo en ekki of stífþeytt.
5. Hrærið eggjahvíturnar saman við súkkulaðið í 3 skömmtum varlega með sleikju.
6. Hellið músinni yfir súkkulaði botninn og kælið í amk 6 klst eða helst yfir nótt.

Karamellukröns & samsetning
1. Bræðið rjómakaramellu Töggur og rjóma í mið/stórum potti.
2. Hrærið síðan kornflexinu við með sleikju þar til að karamellan hefur dreifst vel yfir allt.
3. Skammtið því varlega yfir súkkulaðimús lagið og leyfið að kólna í 30 mín inn í ísskáp.
4. Berið fram og njótið!

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Súkkulaðibotn:● 100 g súkkulaði
● 100 g smjör
● ½ tsk salt
● 2 egg
● ½ dl hveiti


Súkkulaðimús:
● 3 egg (ca 35 g eggjarauður, 90g eggjahvítur)
● 90 g rjómi
● 30 g mjólk
● 1 poki Síríus Sælkerabaksturs suðusúkkulaðidropar (150g)
● 15 g sykur
● ½ tsk salt


Karamellukröns:
● 150 g Kelloggs Corn Flakes
● 200 g rjómi
● 2 pokar rjómakaramellu Töggur (240 g)