Marengsterta sumarsins
Uppskrift
Leiðbeiningar
Marengsbotnar
1. Hitið ofninn í 170°C.
2. Setjið bökunarpappír á tvær ofnskúffur og teiknið um 25 cm hring á hvora.
3. Þeytið saman eggjahvítur og púðursykur þar til topparnir halda sér.
4. Skiptið á milli ofnplatanna og dreifið úr, skiljið eftir um 2 cm af hringjunum sem þið teiknuðu þar sem marengsinn lekur aðeins út við bakstur.
5. Bakið í 45 mínútur og leyfið marengsinum að kólna niður með ofninum í að minnsta kosti klukkustund.
Fylling
1. Takið um 1/3 af rjómanum til hliðar til að setja ofan á síðast.
2. Stappið um helming jarðarberjanna og setjið saman við stærri hlutann af rjómanum (2/3), skerið restina af jarðarberjunum í bita til að skreyta kökuna með.
3. Hellið 1 poka af Bíókroppi saman við rjómann með stöppuðu jarðarberjunum, blandið öllu vel saman og setjið á milli botnanna.
4. Setjið restina af rjómanum á toppinn, smyrjið aðeins út (ekki alveg út að köntum samt) og skreytið með meira Bíókroppi og niðurskornum jarðarberjum.
5. Bræðið að lokum suðusúkkulaðið og dreifið úr yfir alla kökuna.
Innihaldsefni
Marengsbotnar
● 6 eggjahvítur
● 320 g púðursykur
Fylling
● 600 ml þeyttur rjómi
● 500 g jarðarber
● 250 g Bíókropp með pipar-brjóstsykri
● 50 g Síríus suðusúkkulaði