Nóa Kropps bitar
Uppskrift
Leiðbeiningar
Takið til skúffukökuform sem er um 25 x 35 cm stórt og klæðið að innan með bökunarpappír.
Setjið smjör, sýróp, og báðar tegundir af suðusúkkulaði í pott og bræðið saman við meðalhita. Þegar bráðið má hækka hitann örlítið og leyfa blöndunni að „bubbla“ í um hálfa mínútu og slökkvið síðan á hellunni.
Saxið súkkulaðikringlurnar gróft niður og hellið ásamt Nóa Kroppinu í pottinn, blandið varlega saman og hellið í formið, sléttið úr eins og unnt er og kælið.
Bræðið næst mjólkursúkkulaði og hvítt súkkulaði í sitthvorri skálinni.
Dreifið úr mjólkursúkkulaðinu jafnt yfir blönduna og skvettið síðan hvíta súkkulaðinu hér og þar og dragið í gegnum það með pinna/hníf til að mynda marmaraáferð.
Stráið Nóa Kroppi yfir allt saman og kælið að nýju þar til súkkulaðið storknar.
Skerið í bita og geymið í kæli/frysti fram að notkun.
Innihaldsefni
Magn: Um 50 stykki
- 200 g Síríus suðusúkkulaði með karamellu og sjávarsalti
- 100 g Síríus suðusúkkulaði
- 250 g sýróp (í grænu dollunum)
- 50 g smjör
- 3 x poki (3 x 240 g) Nóa Kropp + meira til skrauts
- 1 x poki Nóa Saltkringlur (160 g)
- 200 g Síríus mjólkursúkkulaðidropar
- 80 g Síríus hvítir súkkulaðidropar