Nóa popp bollakökur

IMG 3643

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Súkkulaðibollakökur:
1. Hitið ofninn á 180 C blástur og raðið pappírsformum í bollakökuform og leggið til hliðar.
2. Hrærið hveiti, lyftidufti, matarsóda og salti í stórri skál og setjið til hliðar.
3. Hrærið saman kakói og heitu kaffi í miðlungs skál. Hrærið síðan við sykri, olíu, súrmjólk
og eggi. Hellið þessari blöndu svo í þurrefnin og hrærið þar til að það eru engir kekkir af
hveiti eftir.
4. Skammtið deiginu í bollakökuformi og bakið í 18-25 mín.
5. Leyfið bollakökumum aðeins að kólna í 5-10 mín og færið síðan yfir á kæligrind og
leyfið alveg að kólna.


Karamellu krem og samsetning:
1. Fjarlægið plastið utan af karamellunum og setjið í miðlungs pott ásamt rjóma.
2. Bræðið saman og sjóðið í 5 mín, bætið síðan við salti og hellið í skál og leyfið að kólna í
a.m.k. 30 mín við stofuhita og síðan í amk 3-4 klst inn í ískáp eða helst yfir nótt eða þar
til að blandan er alveg ísköld.
3. Þeytið síðan karamelluna í hrærivél þar til að hún virðist þykk eins og krem.
4. Færið blönduna yfir í sprautupoka með stjörnustút.
5. Sprautið kreminu ofan á hverja bollaköku og skreytið með Nóa Poppi.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Súkkulaðibollakökur:

● 130 g hveiti
● 200 g sykur
● 35 g Nóa Siríus kakó
● 1 tsk lyftiduft
● 1/2 tsk matarsódi
● ½ tsk salt
● 120 g kalt kaffi
● 120 g súrmjólk
● 60 g olía
● 1 egg
● 1 tsk vanilludropar


Karamellu krem:
● 4 pokar töggur
● 200 g rjómi
● klípa salt


Samsetning:
● Nóa Popp