Piparmyntu Brownies (7)

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Brownies uppskrift

  1. Setjið bökunarpappír í botninn á ferköntuðu kökuformi sem er um 25 x 25 cm að stærð og spreyið vel með matarolíuspreyi.
  2. Hitið ofninn í 180°C.
  3. Bræðið suðusúkkulaði og smjör saman í vatnsbaði/örbylgjuofni og leyfið blöndunni svo að standa við stofuhita á meðan annað er undirbúið.
  4. Þeytið saman egg, sykur og vanilludropa þar til blandan verður létt og ljós.
  5. Bætið þá súkkulaðiblöndunni varlega saman við í mjórri bunu.
  6. Næst má setja hveiti og lyftiduft saman við og hræra varlega saman.
  7. Að lokum má saxa Pipp súkkulaðið niður og blanda því varlega saman við með sleikju.
  8. Hellið í kökuformið og bakið í um 40 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á endanum en ekki blautu deigi.
  9. Kælið alveg áður en þið setjið kremið yfir.

 

Piparmyntukrem uppskrift

  1. Þeytið allt saman nema matarlitinn þar til kremið verður létt í sér.
  2. Bætið smá matarlit saman við í lokin og blandið vel.
  3. Smyrjið jafnt yfir brownie kökuna og setjið í frysti á meðan þið útbúið súkkulaðihjúpinn.

 

Súkkulaðihjúpur og skraut uppskrift

  1. Bræðið súkkulaði og smjör saman í vatnsbaði/örbylgjuofni.
  2. Leyfið blöndunni aðeins að standa við stofuhita áður en þið smyrjið henni yfir kökuna úr frystinum.
  3. Setjið hana síðan inn í ísskáp og eftir um 15 mínútur má stinga Pipp bitnum í hana til skrauts og kælið síðan áfram þar til súkkulaðihjúpurinn stífnar alveg.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Brownies uppskrift

  • 150 g Síríus suðusúkkulaði
  • 100 g smjör
  • 4 egg
  • 450 g sykur
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 200 g hveiti
  • ½ tsk. lyftiduft
  • 100 g Pipp súkkulaði með piparmyntufyllingu

 

Piparmyntukrem uppskrift

  • 150 g smjör við stofuhita
  • 270 g flórsykur
  • 3 msk. mjólk
  • 1 ½ tsk. piparmyntudropar
  • Grænn matarlitur

 

Súkkulaðihjúpur og skraut uppskrift

  • 200 g Síríus suðusúkkulaði
  • 80 g smjör
  • 4 x lítil Pipp stykki með piparmyntufyllingu