PIPP Eplakaka
Uppskrift
Leiðbeiningar
1. Hitið ofninn í 180°C og smyrjið eldfast mót að innan með smjöri.
2. Blandið saman sykri, hveiti, smjöri og haframjöli í hrærivélinni, ekki blanda of lengi, betra að hafa þetta lausara í sér til að klípa niður í formið.
3. Flysjið eplin og skerið í þunnar skífur.
4. Skerið gróft niður Pipp og suðusúkkulaði.
5. Raðið í formið: ½ af deiginu í botninn, eplin yfir, kanilsykur, Pipp súkkulaði, restin af deiginu, marsípan (litlar klípur) og loks suðusúkkulaði.
6. Setjið álpappír laust yfir og bakið í 25 mínútur þannig, takið álpappírinn síðan af og bakið í 15 mínútur til viðbótar.
7. Njótið með ís eða þeyttum rjóma.
Innihaldsefni
Eplabaka með karamellusúkkulaði og marsípani
● 130 g sykur
● 130 g hveiti
● 150 g smjör við stofuhita
● 60 g haframjöl
● 3 græn epli
● 100 g Pipp með saltkaramellufyllingu
● 100 g marsipan
● 50 g Síríus suðusúkkulaði
● Kanilsykur (50 g sykur + 1 tsk. kanill)