Pipp Súkkulaðikaka
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C undir og yfir hita.
- Hrærið saman þurrefnablöndunni, eggjum, vatni og olíu/bræddu smjöri.
- Hellið deiginu í smurt 20 cm smelluform og bakið í 20 mín eða þar til kakan er bökuð í gegn. Kælið að stofuhita.
- Bræðið saman 1/2 dl rjóma og 100 g Pipp súkkulaði í potti og kælið að stofuhita.
- Þeytið saman mjúkt smjör og flórsykur þar til mjög mjúkt, létt og loftmikið. Brjótið 100 g Pipp súkkulaði út í kremið og þeytið. Súkkulaðið mun brotna meira í hrærivélinni og verða mis stórt. Bætið rjómanum út í og þeytið þar til afskaplega létt og loftmikið krem með súkkulaðibitum hefur myndast.
- Smyrjið kreminu á kælda kökuna og hellið kælda súkkulaðitoppinum yfir.
Uppskrift frá Lindu Ben
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
Mjúk Pipp Súkkulaðikaka
- 1/2 pakki Ljúffeng súkkulaðikaka þurrefnablanda Lindu Ben
- 2 egg
- 0,75 dl bragðlítil olía eða brætt smjör
- 1/2 dl vatn
Pipp krem
- 200 g mjúkt smjör
- 200 g flórsykur
- 1/2 dl rjómi
- 100 g Pipp með myntufyllingu
Súkkulaðitoppur
- 100 g Pipp með myntufyllingu
- 1/2 dl rjómi