Rice Krispies marengsterta með Nóakroppi

Uppskrift
Leiðbeiningar
Marengsbotnar
Hitið ofninn í 140°C og teiknið 2 x um 20 cm hringi á sitthvorn bökunarpappírinn í ofnskúffu.
Þeytið eggjahvítur og sykur saman á meðalhraða þar til topparnir halda sér og sykurinn er uppleystur.
Vefjið þá Rice Krispies og söxuðu súkkulaðinu saman við með sleikju og skiptið niður í tvo hluta á bökunarpappírana.
Dreifið úr og mótið hringi, bakið í 60 mínútur og leyfið síðan að kólna niður með ofninum áður en þið fyllið.
Fylling og skreyting
Blandið þeyttum rjóma, stöppuðum jarðarberjum og helmingnum af Nóakroppinu varlveg saman með sleikju.
Setjið helminginn á milli botnanna og hinn helminginn ofan á seinni botninn.
Toppið með restinni af Nóakroppinu og bræddu suðusúkkulaðinu.
Innihaldsefni
4 eggjahvítur
220 g sykur
60 g Rice Krispies
50 g Síríus suðusúkkulaði með karamellu og salti – saxað
600 ml þeyttur rjómi
100 g jarðarber (stöppuð)
250 g Nóakropp með karamellukurli og sjávarsalti
50 g Síríus suðusúkkulaði með karamellu og salti – brætt