Skúffukaka með súkkulaði smjörkremi

Skúffukaka Páska (6)

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Skúffukaka 

  1. Hitið ofninn í 175°C .
  2. Setjið bökunarpappír í skúffukökuform (um 25 x 35 cm) og spreyið að innan með matarolíuspreyi.
  3. Setjið þurrefnin í hrærivélarskálina og blandið saman.
  4. Vigtið súrmjólk og matarolíu í skál og pískið saman ásamt eggjum og vanilludropum.
  5. Hellið súrmjólkurblöndunni saman við þurrefnin og hrærið á lágum hraða.
  6. Bætið þá kaffi og vatni saman við, skafið niður og hrærið þar til slétt deig myndast.
  7. Hellið í skúffukökuformið og bakið í 25-30 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á, ekki blautu deigi.
  8. Kælið áður en þið setjið kremið á.

 

Súkkulaðismjörkrem uppskrift og skreyting

  1. Þeytið smjörið í nokkrar mínútur þar til það verður létt í sér. Skafið nokkrum sinnum niður á milli.
  2. Bætið þá flórsykri og bökunarkakó saman við og hrærið aðeins, setjið svo restina af hráefnunum út í.
  3. Þeytið stutta stund, skafið niður á milli og smyrjið svo yfir kökuna.
  4. Skreytið með litlum Síríus páskaeggjum nr. 1, Bíó Nóakroppi, Nóakroppi, smá pastel kökuskrauti og ferskum blómum.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Skúffukaka 

  • 230 g hveiti
  • 90 g bökunarkakó
  • 250 g sykur
  • 90 g púðursykur
  • 2 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. matarsódi
  • ½ tsk salt
  • 260 g súrmjólk
  • 170 g ljós matarolía
  • 3 egg
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 100 ml uppáhellt heitt kaffi
  • 150 ml heitt vatn

 

Súkkulaðismjörkrem uppskrift og skreyting

  • 280 g smjör við stofuhita
  • 260 g flórsykur
  • 50 g bökunarkakó
  • 100 g Síríus suðusúkkulaði (brætt)
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 2 msk. kaffi (uppáhellt)
  • ½ tsk. salt
  • 4 x Nóa Síríus páskaegg nr. 1
  • Nóa Bíókropp
  • Nóakropp
  • Kökuskraut og fersk blóm