Súkkulaði brownie með draugakremi
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
Brownie kaka uppskrift
- Hitið ofninn í 180°C og setjið bökunarpappír í botninn á um 22 cm stóru smelluformi (hringformi). Spreyið það vel að innan með matarolíuspreyi.
- Bræðið suðusúkkulaði og smjör í vatnsbaði og leyfið hitanum síðan aðeins að rjúka úr blöndunni.
- Þeytið egg og sykur þar til létt og ljós blanda myndast. Hellið súkkulaðibráðinni saman við í mjórri bunu og hrærið varlega á meðan.
- Næst má sigta hveiti og kakó og blanda varlega saman við og bæta saltinu saman við.
- Að lokum má vefja saxaða rjómasúkkulaðinu saman við deigið með sleikju.
- Hellið í formið og bakið í 35-40 mínútur eða þar til prjónn kemur úr með smá kökumylsnu á endanum en ekki blautu deigi.
- Kælið kökuna alveg áður en þið setjið ganache og krem yfir hana.
Ganache súkkulaðibráð
- Saxið súkkulaðið smátt niður og setjið í litla skál.
- Hitið rjómann að suðu og hellið yfir súkkulaðið, leyfið að standa í um 2 mínútur og pískið síðan saman.
- Hellið kreminu ofan á kælda kökubotninn og dreifið því jafnt yfir, leyfið að leka örlítið niður hliðarnar.
Frosting krem og draugaskreyting
- Hitið sykur, sýróp og vatn saman í potti. Hitið að suðu og lækkið svo hitann, hrærið stanslaust í þar til sykurinn er bráðinn. Þetta tekur um 5 mínútur.
- Hellið sykurblöndunni yfir í könnu og leyfið hitanum að rjúka úr í nokkrar mínútur, hrærið reglulega í blöndunni á meðan.
- Stífþeytið næst eggjahvíturnar og lækkið síðan hraðann niður í hægasta á hrærivélinni.
- Hellið volgri sykurblöndunni varlega saman við í mjórri bunu.
- Þeytið síðan að nýju þar til stífir toppar myndast.
- Bætið vanilludropum saman við í lokin og þeytið aðeins áfram.
- Smyrjið um 1/3 af kreminu yfir botninn en ekki alveg út á kantana, skiljið eftir smá kant allan hringinn.
- Setjið restina af kreminu í sprautupoka með stórum hringlaga stút (um 2 cm í þvermál) og sprautið drauga ofan á kremið.
- Skreytið með því að setja tvö sykuraugu á hvern draug og kælið síðan kökuna.
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
Brownie kaka uppskrift
- 210 g smjör
- 220 g Síríus suðusúkkulaði
- 300 g sykur
- 4 egg
- 100 g hveiti
- 40 g bökunarkakó
- ½ tsk. salt
- 100 g Síríus rjómasúkkulaði (saxað gróft)
Ganache súkkulaðibráð
- 100 g Síríus suðusúkkulaði með karamellu og sjávarsalti
- 50 ml rjómi
Frosting krem og draugaskreyting
- 250 g sykur
- 70 ml sýróp
- 40 ml vatn
- 1 tsk. vanilludropar
- 3 eggjahvítur
- Sykuraugu