Súkkulaði pavlova með Bíókroppi
Uppskrift eftir Lindu Ben.
Stökk að utan, mjúk og seig að innan með silkimjúku súkkulaðikremi og stökku Bíókroppi ofan á. Létti marengsinn og loftkennt kremið passar einstaklega vel með stökku Bíókropps kúlunum og úr verður eftirréttur sem bæði lítur glæsilega út og bragðast enn betur.
Þessi er fullkomin fyrir afmæli, matarboð eða þegar ykkur langar einfaldlega að gera aðeins meira úr helginni!
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
- Stillið ofninn á 120ºC, undir og yfir hita.
- Notið fullkomlega hreina hrærivéla skál, setjið eggjahvíturnar í skálina ásamt cream of tartar og notið þeytarann.
- Blandið kornsterkjunni út í sykurinn, hrærið saman.
- Þeytið eggjahvíturnar mjög rólega fyrst, setjið 1 msk af sykri út í eggjahvíturnar í einu á ca ½ mín fresti, aukið hraðann hægt og rólega eftir því sem þið setjið meiri sykur út í (þolinmæðisverk en þó þess virði).
- Blandið saman vanilludropum og edikinu, hellið blöndunni út í þegar eggjahvíturnar hafa náð stífum toppum og hrærið saman við í ½ mín lengur.
- Setjið smjörpappír á ofnplötu, hellið marengsnum á smjörpappírinn og mótið u.þ.b. 22 cm breiða köku.
- Bakið í 50-60 mín, slökkvið svo á ofninum en ekki opna ofninn. Látið kökuna kólna með ofninum. Takið út þegar ofninn hefur kólnað fullkomlega.
- Bræðið súkkulaði með 50 ml rjóma í potti og kælið svo blönduna að stofuhita.
- Þeytið 250 ml rjóma þar til hann byrjar að þykkna og hellið þá súkkulaðinu varlega út í rjómann á meðan þið þeytið. Þeytið þar til rjóminn er full þeyttur
- Saxið helminginn af Bíiókroppinu gróft niður og blandið saman við rjómann og setjið hann svo ofan á kökuna.
- Setjið það sem eftir er af Bíókroppinu yfir kökuna.
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
- 3 eggjahvítur
- 2 dl sykur
- 1 tsk kornsterkja (maizenamjöl)
- 1/8 tsk cream of tartar
- 1 tsk vanilludropar
- 1 tsk hvítvínsedik eða hvítt borðedik
Súkkulaðifylling
- 300 ml rjómi
- 100 g suðusúkkulaði
- 200 g Bíókropp