Súkkulaði Smash „Tart''

Uppskrift
Leiðbeiningar
Smash botn
Myljið Smash í matvinnsluvél þar til allt er mulið fínt.
Hellið smjörinu yfir og hrærið þar til allt kemur lauslega saman.
Hellið blöndunni í stórt tart form með lausum botni.
Þjappið vel í botninn og upp allar hliðar. Kælið síðan tart skelina og gerið karamelluna á meðan.
Saltkaramellusós
Setjið saman sykur og vatn í miðlungs pott og bræðið saman yfir lágum hita.
Ekki hræra neitt í blöndunni en vaktið hana rosa vel.
Hægt og rólega á blandan að byrja að fá smá dekkri lit, lækkið enn meira í hitanum og um leið og karamellan verður gullinbrún þá á að hella rjómanum út í í þremur skömmtum, og hrærið vel á milli.
Varist að karamellan frussist smá upp og gæti komið smá gufuský.
Bætið síðan við klípu af sjávarsalti og sjóðið í auka 3 mín við miðlungs hita.
Takið af hitanum og hellið í ílát sem þolir hita.
Leyfið blöndunni síðan að kólna í 15 mínútur og hellið svo í tart botninn og setjið inn í ísskáp í um það bil 30 mínútur.
Á meðan er gott að byrja á súkkulaði ganache-inu.
Súkkulaði ganache
Hitið rjómann og smjörið saman þar til það kemur létt suða.
Takið síðan af hitanum og bætið súkkulaðinu við og hrærið þar til súkkulaðið hefur bráðnað.
Látið blönduna kólna í 15 mínútur og hellið síðan yfir karamelluna.
Leyfið svo tartinu að kólna alveg niður inn í ísskáp í um það bil 1 ½ til 2 klukkustundir.
Samsetning
Best er að taka tartið út 30 mínútur áður en það er borið fram.
Gott að hafa rjóma til hliðar en tartið er líka ljúffengt án hans.
Innihaldsefni
Botn
3 pokar Smash (300 g)
180 g bráðið smjör
Saltkaramellusósa
220g sykur
120 g vatn
240 g rjómi
Klípa af salti
Súkkulaði ganache
200 g suðusúkkulaði
200 g rjómi
50 g smjör