Súkkulaðikaka með karamellukremi

Linda Ben X Noi Sirius Februar 2026 2 7 Scaled

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið súkkulaði þurrefnablönduna í skál ásamt eggjum, olíu og vatni, hrærið þar til orðið að mjúku deigi.
  3. Smyrjið þrjú 20 cm smellufom vel svo þau verði alveg hvít. Skiptið súkkulaðikökudeiginu á milli formanna og bakið í u.þ.b. 20 mín eða þar til kökurnar eru bakaðar í gegn. Kælið kökurnar og útbúið kremið á meðan.
  4. Setjið karamellurrnar og 200 g af smjöri í pott og bræðið varlega saman. Kælið að stofuhita.
  5. Setjið smjörið og flórsykur í hrærivél og þeytið saman, bætið kældu karamellunni út í og þeytið þar til létt, mjúkt og loftmikið (þeyta í a.m.k. í 5 mín). Setjið kremið í sprautupoka.
  6. Setjið fyrsta kökubotninn á kökudisk. Sprautið smá kökukremi á botninn og sléttið úr. Setjið næsta kökubotn ofan á og endurtakið. Þegar þið setjið þriðja og efsta kökubotninn á þá setjiði krem yfir hann og hliðar kökunnar. Sléttið úr kreminu.
  7. Sprautið því sem eftir er af kreminu ofan á kökuna.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Súkkulaðikaka

  • Ljúffeng súkkulaðikaka þurrefnablanda Linda Ben
  • 3 egg
  • 1 dl vatn
  • 1 1/2 dl bragðlítil olía

 

Karamellukrem með Töggum

  • 500 g mjúkt smjör (skipt í 200 g og 300 g)
  • 500 g flórsykur
  • 240 g Töggur rjómakaramellur frá Nóa Síríus