Súkkulaðikaka með súkkulaði smjörkremi

Sukkuladikaka 1890X780

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Botn

Hitið ofninn í 160°C.

Setjið bökunarpappír í botninn á 3 x 15 cm smelluformum og spreyið að innan með matarolíuspreyi.

Sigtið hveiti, bökunarkakó, matarsóda og lyftiduft saman í hrærivélarskálina og blandið síðan báðum tegundum af sykri og salti saman við.

Blandið súrmjólk, matarolíu, eggjum og vanilludropum saman í aðra skál og pískið saman.

Hrærið þurrefnunum saman á lægstu stillingu með K-inu í hrærivélinni og hellið súrmjólkurblöndunni varlega saman við á meðan.

Næst má hella heitu vatninu í mjórri bunu útí, blanda vel og skafa niður á milli.

Skiptið þá í formin þrjú, það fara um 450g í hvert form.

Bakið í 20-25 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsu á en ekki blautu deigi.

Kælið stutta stund, takið næst úr formunum og færið yfir á kæligrind þar til botnarnir kólna alveg.

Þá má skera aðeins ofan af þeim til að slétta þá.

 

Súkkulaði smjörkrem

Brjótið súkkulaðið niður og bræðið ásamt rjómanum (í örbylgjuofni eða potti), hrærið reglulega í á meðan þar til það er bráðið.

Geymið og leyfið að ná stofuhita á meðan annað er undirbúið.

Þeytið smjörið í um 5 mínútur þar til það verður létt í sér, skafið reglulega niður á milli.

Blandið súkkulaðiblöndunni næst saman við í nokkrum skömmtum, þeytið og skafið niður á milli.

Næst má setja flórsykurinn í nokkrum skömmtum saman við og að lokum vanilludropa og salt. Gott er að sigta flórsykurinn fyrst.

Hrærið allt saman í nokkrar mínútur þar til það er létt og ljóst, notið síðan sleikju til að vefja því saman og taka mesta loftið úr kreminu áður en þið smyrjið á kökuna.

 

Samsetning

Smyrjið smá kremi á kökudisk og setjið fyrsta botninn þar ofan á.

Smyrjið vænu lagi af kremi á milli og endurtakið þar til allir 3 botnarnir eru komnir.

Smyrjið þá þunnu lagi af kremi utan um alla kökuna, skafið vel af fyrir „nakta köku“ en að sjálfsögðu má hafa þykkara lag af kremi sé þess óskað.

Smyrjið einnig yfir toppinn og sléttið úr kreminu eins og hægt er og takið umfram krem af kantinum/toppinum.

Kælið kökuna í um 15 mínútur og setjið síðan á hana ganaché og skreytið.

 

Ganaché og skreyting

Saxið suðusúkkulaðið smátt niður og setjið í skál.

Hitið rjómann að suðu, hellið yfir súkkulaðið og pískið saman þar til slétt súkkulaðibráð hefur myndast.

Hellið yfir kælda kökuna og látið aðeins leka fram af toppinum.

Skreytið með súkkulaði páskaeggjum og ferskum blómum.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Botn

240 g hveiti

80 g Síríus bökunarkakó

2 tsk. matarsódi

1 tsk. lyftiduft

290 g sykur

60 g púðursykur

1 tsk. salt

240 g súrmjólk

110 g ljós matarolía

3 egg

2 tsk. vanilludropar

240 g sjóðandi vatn

 

Súkkulaði smjörkrem

200 g Síríus suðusúkkulaði

50 ml rjómi

340 g smjör (kalt smjör í teningum)

590 g flórsykur

3 tsk. vanilludropar

¼ tsk. salt

 

Ganaché og skreyting

100 g Síríus suðusúkkulaði

60 ml rjómi

Síríus lítil páskaegg með mjólkursúkkulaði

Síríus lítil páskaegg með dökku súkkulaði