Sumarkropp Tart

IMG 3661

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Botn:
● 2 pokar Bíó Kropp með piparbrjóstsykri (360 g)
● 60 g bráðið smjör


Súkkulaði ganache fylling:
● 300 g suðusúkkulaði
● 250 g rjómi
● 50 g smjör


Samsetning:
● Hindber (ca 500-700)

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Kropp botn:
● Myljið Bíó kroppið í matvinnsluvél þar til allt er mulið fínt.
● Bætið síðan brædda smjörinu yfir og hrærið þar til allt kemur lauslega saman.
● Hellið blöndunni í stórt tart form með lausum botni. Þjappið vel í botninn og upp allar
hliðar. Kælið síðan tart skelina og gerið Súkkulaði fyllinguna á meðan.


Súkkulaði ganache fylling:
● Hitið rjómann og smjörið saman þar til kemur létt suða.
● Takið síðan af hitanum og bætið súkkulaðinu við og hrærið þar til súkkulaðið hefur
bráðnað.
● Látið blönduna kólna í 10 mínútur og hellið síðan í tart botninn.
● Leyfið svo tartinu að kólna inn í ísskáp í um það bil 1 ½ til 2 klukkustundir eða yfir nótt.


Samsetning:
● Takið tartið varlega úr forminu og færið yfir á disk með því að renna þunnum spaða
meðfram botni formsins og renna tartinu varlega yfir á diskinn.
● Setjið hindberin ofan á tartið þar til að þau þekja allt yfirborðið.
● Berið fram og njótið. Verði ykkur að góðu :)