Lakkrístoppar með Gull Sett bitum
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
Kveikið á ofninum, stillið á 150°C og undir yfir hita.
Þeytið eggjahvíturar og þegar mjúkir toppar hafa myndast bætið þá sykrinum hægt og rólega út í og þeytið þar til eggjahvíturnar eru stífþeyttar.
Skerið Gull Settið niður og blandið varlega saman við með sleikju.
Notið tvær teskeiðar til þess að móta toppana, passið að hafa ágætis pláss á milli þar sem topparnir stækka í ofninum.
Bakið í 17-18 mín.
Uppskrift frá Lindu Ben
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
3 eggjahvítur
200 g púðursykur
285 g Gull Sett bitar