Marengssmákökur með súkkulaði og karamellukurli

Linda Ben X NóI SíRíUs NóVember 2026 1 1 Copy

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
  1. Kveikið á ofninum og stillið á 120°C, undir- og yfirhita.

  2. Setjið eggjahvíturnar í tandurhreina skál ásamt cream of tartar og salti. Þeytið þar til byrjar að freyða. Bætið sykrinum saman við smám saman og þeytið þar til marengsinn er orðinn glansandi og stífir toppar hafa myndast.

  3. Setjið væna skeið af marengs á bökunarplötu klædda smjörpappír og myndið litla dæld í miðjuna með bakhlið skeiðarinnar. Endurtakið þar til allur marengsinn hefur verið notaður. Passið að hafa gott pláss á milli því kökurnar stækka mikið í ofninum.

  4. Bræðið suðusúkkulaðið yfir vatnsbaði og leyfið því að kólna örlítið. Setjið u.þ.b. 1 msk. af bræddu súkkulaði í dældina á hverri marengsköku. Notið tannstöngul eða grillpinna til að blanda súkkulaðinu varlega saman við marengsinn þannig að fallegt marmaramynstur myndist. Stráið karamellukurli yfir.

  5. Bakið í 1 klst. og leyfið kökunum að kólna alveg áður en þær eru teknar af smjörpappírnum.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
  • 4 eggjahvítur

  • ¼ tsk cream of tartar

  • ¼ tsk salt

  • 250 g sykur

  • 200 g Síríus suðusúkkulaði

  • 100 g Síríus sælkerabaksturs karamellukurl