Rice Krispies bitar milljónamæringsins
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
Um 30 bitar
Aðferð
1. Bræðið rjómakúlurnar, smjörið og rjómann saman á lágum hita í stórum potti þar til allar kúlurnar eru alveg bráðnaðar.
2. Hellið Rice Krispies út í og hrærið saman.
3. Setjið bökunarpappír í kökuform eða stórt mót og pressið vel niður þar til yfirborðið er slétt og fínt.
4. Bræðið rjómasúkkulaði dropana í örbylgjuofni eða yfir vatns baði, hellið yfir og dreifið varlega þar til þeir þekja allt.
5. Kælið í ísskáp eða frysti í 1-2 tíma.
6. Takið úr mótinu og skerið í bita.
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
2 pokar Nóa rjómakúlur
75 g smjör
½ dl rjómi
7½ dl Rice Krispies
2 pokar Síríus rjóma súkkulaðidropar