„Rocky Road“ súkkulaðimolar

Rocky Road 6 600X900

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
  1. Bræðið mjólkursúkkulaði + suðusúkkulaði og setjið allt nema súkkulaðiperlur saman í skál og blandið saman.
  2. Klæðið um 25×25 cm bökunarmót að innan með bökunarpappír, hellið blöndunni ofan í, þjappið niður og sléttið úr eins og hægt er.
  3. Stráið súkkulaðiperlum yfir allt og setjið í kæli í að minnsta kosti klukkustund.
  4. Skerið síðan niður í bita og njótið!

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
  • 1 poki Nóa Bíókropp
  • 1 poki Nóa súkkulaðikringlur
  • 1 poki Smash súkkulaðisnakk
  • 1 poki Nóa Koddar
  • 200 g Síríus mjólkursúkkulaði
  • 200 g Síríus suðusúkkulaði
  • 100 g Síríus súkkulaðiperlur