Snúðar með eplafyllingu og karamellukurli
Uppskrift
Leiðbeiningar
Um 20 stykki
Aðferð – Snúðadeig
1. Byrjið á því að útbúa eplafyllinguna svo hún nái að kólna á meðan deigið er útbúið.
2. Bræðið smjörið í potti og hellið því í hrærivélarskál ásamt mjólkinni.
3. Blandan á að vera ylvolg en ekki heit.
4. Bætið sykri, þurrgeri, salti og kardimommudropum saman við.
5. Bætið hveitinu smám saman út í á meðan deigið er hnoðað. Gætið þess að bæta ekki of miklu hveiti við svo snúðarnir verði ekki þurrir.
6. Deigið á að vera mjúkt og teygjanlegt og þið eigið að geta snert það með fingrinum án þess að það festist við hann.
7. Leggið viskustykki eða plastfilmu yfir skálina og látið deigið hefast í um klukkustund, eða þar til það hefur um það bil tvöfaldast að stærð.
8. Skiptið deiginu í tvennt og fletjið annan helminginn út í einu í stóran ferhyrning. Smyrjið eplafyllingunni jafnt yfir deigið og brjótið það í þrennt eftir endilöngu. Skerið deigið í lengjur, snúið upp á þær og mótið snúða.
9. Raðið snúðunum á tvær bökunarplötur með bökunarpappír. Leggið viskustykki eða plastfilmu lauslega yfir og látið hefast aftur í um klukkustund.
8. Hitið ofninn í 200°C.
9. Bakið snúðana í 12–15 mínútur, eða þar til þeir eru fallega gullinbrúnir.
10. Á meðan snúðarnir bakast er sykurlögurinn útbúinn. Blandið saman 1 dl af sykri og 1 dl. af heitu vatni og hrærið þar til sykurinn hefur leyst upp.
11. Penslið snúðana með sykurleginum um leið og þeir koma úr ofninum. Sykurlögurinn gefur þeim fallegan gljáa og hjálpar til við að halda þeim mjúkum lengur.
12. Skreytið að vild með karamellukurli.
Aðferð – Epla- og karamellukompott
1. Afhýðið eplin, fjarlægið kjarnana og skerið í litla bita.
2. Bræðið smjörið í stórum potti eða á pönnu við meðalhita. Bætið eplunum út í og steikið í 3–4 mínútur, eða þar til þau byrja að mýkjast.
3. Bætið sykri og salti saman við og hrærið vel. Látið malla við vægan til meðalháan hita í 8–12 mínútur, eða þar til eplin eru orðin mjúk en halda enn lögun sinni.
4. Bætið karamellukurlinu út í og hrærið þar til það hefur bráðnað og myndað karamellusósu utan um eplin.
5. Hrærið maíssterkjunni saman við vatnið og hellið blöndunni út í kompottinn á meðan þið hrærið.
6. Látið malla áfram í 1–2 mínútur, eða þar til kompotturinn hefur þykknað. Ef hann er enn of þunnur má láta hann malla örlítið lengur án loks.
7. Takið pottinn af hitanum og látið kompottinn kólna alveg áður en honum er smurt yfir deigið.
Innihaldsefni
Snúðadeig
100 g smjör
5 dl mjólk
7 g þurrger
1 tsk kardimommudropar
1½ dl sykur
11–12 dl hveiti
Lítil klípa af salti
Epla- og karamellukompott
8 epli
1 dl sykur
100 g smjör
1 poki Síríus karamellukurl
Lítil klípa af salti
1 msk maíssterkja
2 msk vatn